17 án atvinnu í Dalvíkurbyggð í júlí
Í Dalvíkurbyggð eru 17 án atvinnu í júlí 2018 og mælist 1,6% atvinnuleysi. Alls eru 11 karlar 6 konur án atvinnu í Dalvíkurbyggð í júlí mánuði.
Alls eru 32 án atvinnu í Fjallabyggð í júlí 2018. Í Skagafirði eru 20 án atvinnu og þar mælist aðeins 0,9% atvinnuleysi. Á Akureyri eru 212 án atvinnu og þar mælist 2% atvinnuleysi. Þá eru 39 án atvinnu í Norðurþingi og þar mælist 1,8% atvinnuleysi.
Tölulegar upplýsingar koma frá Vinnumálastofnun.