dalvíkurbyggðFjallabyggð

4. flokkur KF/Dalvík kvenna á Íslandsmótinu

KF/Dalvík heldur úti sameiginlegu liði á Íslandsmóti 4. flokks A-liða í D deild kvenna. Lota 1 hófst í lok apríl með leik KF/Dalvík og Fram, en sá leikur endaði með 2-5 sigri Fram.

Næsti leikur útileikur KFR/KF/Dalvík og lauk þeim leik með 2-2 jafntefli og fyrsta stigið kom í hús.

Þriðji leikurinn var gegn sterku liði Gróttu á útivelli, og unnu heimastelpurnar 4-0 sigur, þar sem staðan var 3-0 í hálfleik.

Fjórði leikurinn var svo 30. maí á Dalvíkurvelli gegn Reykjanesliðinu RKVN-2. Kalt var á leiknum og var dómaratríóið með húfur og hanska. Aðsendar myndir með fréttinni koma frá þeim leik.

Jósefína Myrra Sævarsdóttir skoraði á 25. mínútu fyrir KF/Dalvík og RKVN liðið jafnaði á 32. mínútu. Lokatölur úr leiknum urðu því 1-1.

KF/Dalvík er því komið með 2 stig úr fyrstu fjórum leikjum mótsins og eru í 5. sæti af fimm liðum.