47 í einangrun í Dalvíkurbyggð og 43 í sóttkví
Mikið álag var í sýnatökum á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gær en alls greindust 376 einstaklingar á Norðurlandi eystra í gær. Alls eru núna 1163 í einangrun á Norðurlandi eystra og 1069 í sóttkví. Þá eru 58 í einangrun á Norðurlandi vestra og 44 í sóttkví. Tæplega 1000 manns eru í einangrun á Akureyri og tæplega 100 á Húsavík. Þá eru 47 í einangrun í Dalvíkurbyggð og 43 í sóttkví. Fjórir eru í einangrun í Fjallabyggð og 8 í sóttkví.
Aldrei áður hafa jafnmargir verið í einangrun á Norðurlandi eystra og nú.
Heildarfjöldi smita á landinu í gær var 2254 og 18 á landamærum.

