Afli ísfisktogara Samherja 2025
Bolfiskveiðar ísfisktogara Samherja gengu almennt vel á nýliðnu ári. Heildarafli Kaldbaks EA 1 á árinu var 9.144 tonn.
Björgúlfur EA 312 landaði samtals 8.887 tonnum, afli Bjargar EA 7 var 8.660 tonn og afli Harðbaks EA 3 var 5.638 tonn á árinu.
Samanlagður heildarafli togaranna var því 32.328 tonn.
Ljóst er að þrjú systurskip Samherja, Kaldbakur, Björgúlfur og Björg eru í þremur efstu sætum yfir aflahæstu ísfisktogara landsins.
Togararnir sjá landvinnslum félagsins á Akureyri og Dalvík fyrir hráefni, þar sem starfa samtals um þrjú hundruð manns. Á skipum Samherja eru tvöfaldar áhafnir og eru um eitt hundrað sjómenn á ísfisktogurum félagins.
Heimild og myndir: samherji.is.

