Andrea Gylfa mætir í Gestaboð Kristjönu í Bergi
Gestaboð Kristjönu er heiti á tónleikaröð þar sem Kristjana Arngrímsdóttir fær til sín tónlistarfólk úr ólíkum áttum. Annað af þremur gestaboðum verður fimmtudaginn 15. nóvember kl.20.30 í Bergi Menningarhúsinu á Dalvík. Gestasöngkona er engin önnur en Andrea Gylfadóttir. Miðasala við innganginn, verð aðeins 3500 kr. og posi á staðnum.
Hljómsveitin hússins:
Jón Rafnsson hinn hugprúði kontrabassaleikari
Örn Eldjárn hinn lipri gítarsnillingur
Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar styrkir þessa tónleikaröð.