Bikarmót götuhjólreiða á Dalvík sunnudaginn 27. júlí
Sunnudaginn 27. júlí frá kl 10:00 -14:00, fer fram Bikarmót götuhjólreiða frá Dalvík, um Ólafsfjarðarveg, Tunguveg og Svarfaðadalsveg.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.
Hjólaður verður hringur í Svarfaðardal ofan Dalvíkur sem er 23,6 km og með 190 metra hækkun. Ræst við félagsheimilið Víkurröst á Dalvík. 38 eru skráðir til leiks og er keppt í nokkrum flokkum.
Hjólreiðafélag Akureyrar skipuleggur mótið.
