Björgunarsveitin á Dalvík með leitaræfingu
Í kvöld, miðvikudaginn 21. október verður Björgunarsveitin á Dalvík með leitaræfingu. Æfingin er hluti af þjálfun sveitarinnar og gefur sveitinni tækifæri til að æfa sig við raunhæfar aðstæður.
Íbúar í Dalvíkurbyggð gætu því orðið varir við björgunarsveitarfólk og tæki á ferðinni um Dalvík og nágrenni í kvöld.
Þetta er aðeins til upplýsingar svo fólk viti af æfingunni.
