Akureyridalvíkurbyggð

Bókarkynning á Minjasafninu á Akureyri 22. október – Hernámsæskan

Fimmtudaginn 22. október kl. 17:00 verður sagnfræðingurinn Leifur Reynisson með bókarkynningu í máli og myndum í Minjasafninu á Akureyri. Þar kynnir hann stórmerka bók sína, Hernámsæskuna, sem lýsir því á fróðlegan og skemmtilegan máta hvernig samfélagið á Íslandi breyttist á örfáaum árum með hernáminu. Unglingamenning tók að skjóta rótum og tími stælgæjans og skvísunnar var runninn upp. Sú værð sem fram að því hafði ríkt yfir mannlífinu vék fyrir daglegum stórtíðindum. Þrammandi hermenn, hraðskreið farartæki, skipamergð, dynjandi flugvélar, sírenuvæl og geltandi byssur – allt blandaðist þetta saman við lúðraþytinn, djassinn, Coca Cola og glaðværðina sem annars ríkt meðal dáta á frívakt.

Örlítið bókarbrot:

Ungmenni utan í hernum – Siglufjörður
„Áhyggjuraddir heyrðust reglulega næstu árin og var iðulega vísað til ungmenna sem ráfuðu um götur, leituðu uppi samastaði hersins og hentust um „eins og villingar í iðu hinnar hættulegu og óskaplegu umferðar.“ Ítrekað var biðlað til foreldra að gæta að börnum sínum og banna allt samneyti við dátana. Einherji á Siglufirði hélt því fram að „unglingar sýni undirlægjuhátt og óþarfa umgengni við herinn og þykist meiri ef þeir geta talað nokkur orð í ensku.“ Slík ummæli mátti heyra um æskuna víða um land. Vísir lét þess getið að unglingar söfnuðust saman við bækistöðvar setuliðsins og héngju þar „að jafnaði kveld eftir kveld“ þó ekki væri til annars en „glápa“ á Bretana og þótti það háttalag lýsa „miklu menningarleysi og uppeldisleysi.““

Bókin verður seld á tilboðsverði, kr. 7.000 á bókarkynningunni, en þar verður þó enginn posi til staðar, svo að reiðufé væri kjörið, en einnig verður hægt að leggja inn á bankareikning.
Það er Bókaútgáfan Hólar sem gefur út Hernámsæskuna og vonandi mæta sem flestir söguáhugamenn á Norðurlandi á kynninguna.