dalvíkurbyggð

Brunamálaskólinn hélt námskeið á Dalvík

Brunamálaskólinn hélt námskeið á Dalvík um nýliðna helgi þar sem slökkviliðsmenn fengu þjálfun í vatnsöflun, reykköfun og almennum björgunaraðgerðum. Þá var einnig farið í heita reykköfun. Slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Dalvíkur, Slökkviliði Fjallabyggðar auk slökkviliðsmanna frá Brunavörnum Skagafjarðar, Brunavörnum Húnaþings vestra sóttu námskeiðið.

Um var að ræða verklega lotu í Grunnnámi lotu 1 – Slökkvitækni I. Leiðbeinendur voru þeir Smári og Halldór frá Brunavörnum Árnessýslu.

Slökkvilið Akureyrar veitti aðstoð og lánuðu yfirtendrunargám fyrir námskeiðið.

Brunamálaskólinn er skóli á vegum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem sér um menntun og þjálfun fyrir starfandi slökkviliðsmenn, slökkviliðsstjóra og eldvarnareftirlitsmenn á Íslandi.