Búið að loka golfvellinum í Dalvíkurbyggð
Golfklúbburinn Hamar Dalvík hefur tilkynnt að búið sé að loka Arnarholtsvelli fyrir notkun þetta árið. Frost var á vellinum í nótt og útlit fyrir kulda næstu daga. Notkun á vellinum við þessar aðstæður getur valdið skemmdum á grasinu. Golfklúbburinn vill frekar vernda völlinn núna og mæta með hann sem bestan næsta sumar.
