Dagskrá í Dalvíkurbyggð 1. júní í tengslum við Sjómannadaginn
Í dag 1. júní verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Dalvík. Klukkan 11:00 verður dorgveiðikeppni. Í hádeginu verður Landhelgisgæslan með þyrlusýningu. Á Norðurbryggjunni verður keppt í kappróðri, reipitogi, koddaslag og naglaboðhlaupi. Á hátíðarsvæðinu verður boðið uppá grillaðar pylsur og safa. Skralli trúður heilsar upp á börnin og einnig verður hoppukastali á svæðinu.
Klukkan 17:00 verður svo skemmtisigling í boði Artic sea tours.
