dalvíkurbyggð

Dalvík og Völsungur mættust í 8 marka leik í Lengjubikar kvenna

Dalvík/Reynir og Völsungur mættust á Dalvíkurvelli í dag í Lengjubikar kvenna. Liðin keppa í C-deild kvenna og var þetta 2. umferð. D/R hafði tapað gegn Smára í fyrstu umferðinni en Völsungur vann ÍR.

D/R stelpurnar byrjuðu leikinn vel og voru komnar í 2-0 eftir 11. mínútur.  Ragnheiður Steindórsdóttir skoraði fyrsta markið á 3. mínútu og annað markið var skráð sjálfsmark.

Völsungur vaknaði heldur betur við þessa byrjun og skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik og var staðan 2-3 í hálfleik.

Heimaliðið byrjaði síðari hálfleik aftur af krafti og skoraði Ragnheiður sitt annað mark á 54. mínútu og jafnaði leikinn 3-3.

Bæði lið nýttu sínar skiptingar í síðari hálfleik og allt stefndi í jafntefli þegar komið var fram í uppbótartíma.

Lilja Geirsdóttir kom D/R í 4-3 á 92. mínútu en gestirnir jöfnuðu leikinn á 93. mínútu og endaði leikurinn því 4-4.

Dalvík/Reynir mætist næst ÍR 29. mars í Breiðholtinu.