dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir mætti KFR í 2. deild kvenna

Dalvík/Reynir mætti KFR á Dalvíkurvelli í 2. deild kvenna í gær í 4. umferð Íslandsmótsins.

D/R byrjaði leikinn vel og komust yfir á 16. mínútur þegar Erika Egilsdóttir skoraði. KFR gerði sjálfsmark á 27. mínútu og var staðan 2-0 fyrir D/R og var það einnig staðan í hálfleik.

Erika skoraði aftur í byrjun síðari hálfleiks og var staðan orðin 3-0.

KFR minnkaði muninn í 3-1 undir lok leiksins, Linda Rós Jónsdóttir bætti við marki fyrir D/R í uppbótartíma. Lokatölur urðu því 4-1 fyrir D/R. Glæsilegur sigur.