Dalvík/Reynir og Fjölnir mættust í 2. deild kvenna
Dalvík/Reynir og Fjölnir mættust í 2. deild kvenna á Annan í Hvítasunnu á Dalvíkurvelli.
Gestirnir skoruðu fyrsta mark leiksins á 39. mínútu og leiddu 0-1 í hálfleik.
D/R gerði eina skiptingu í hálfleik þegar Ellý Elvarsdóttir kom inná fyrir Snædísi Ósk.
Fjölnir gerði annað mark þegar um 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik og komust í 0-2.
Á 66. mínútu gerði þjálfari D/R þrefalda skiptingu til að freista þess að komast betur inn í leikinn.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og var þetta þriðja tap D/R liðsins í röð í deildinni.
