Dalvík/Reynir og Hvíti Riddarinn mættust í markaleik í Mosfellsbænum
Dalvík/Reynir heimsótti Hvíta Riddarann í 11. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla. D/R var búið að vera á mikilli siglingu í undanförnum umferðum á meðan Hvíti Riddarinn var í neðri hluta deildarinnar.
D/R byrjaði fyrri hálfleikinn vel og skoraði Áki Sölvason strax á 6. mínútu. Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa kom D/R í 0-2 á 17. mínútu.
Heimamenn skoruðu rétt fyrir leikhlé og var staðan því 1-2 í hálfleik.
Hvíti Riddarinn komst betur inn í leikinn og jöfnuðu leikinn á 63. mínútu, með marki frá Pétri Guðjónssyni, sem hafði komið inná sem varamaður skömmu áður. Staðan 2-2 og allt í járnum.
Tíu mínútum síðar gerði D/R sjálfsmark sem er skráð á Þröst Jónasson og var staðan orðin 3-2 fyrir heimamenn.
Það var ekki fyrr en í uppbótartíma sem D/R skoraði og jafnaði leikinn í 3-3 og var það fyrirliðinn Þröstur Jónasson sem bjargaði þessu stigi í hús.
Hörku leikur og mikið af færum.
