dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir og Smári mættust í 2. deild kvenna

Meistaraflokkur kvenna hjá Dalvík/Reyni mætti Smára í 11. umferð Íslandsmótsins í 2. deild í knattspyrnu. Smári var í neðsta sæti 2. deildar með 0 stig eftir 10 leiki. Liðið hafði aðeins skorað 1 mark og kom það í fysta leik mótsins en liðið hafði fengið á sig 54 mörk og tapað nokkrum leikjum mjög stórt.

Dalvík/Reynir var í 8. sæti fyrir þennan leik og gat með sigri komist aðeins ofar í töfluna. Eftir þessa umferð hefst úrslitakeppni mótsins og er deildinni skipt í þrjá hluta, a,b og c.

Hafrún Mist Guðmundsdóttir gerði fyrsta mark leiksins á 37. mínútu og var D/R yfir 1-0 í hálfleik. Strax í byrjun síðari hálfleiks skoraði Hafrún Mist aftur og kom D/R í 2-0.

Þjálfari D/R gerði þrefalda skiptingu á 62. mínútu. Á 76. mínútu kom þriðja markið og var það Hafdís Nína Elmarsdóttir sem hafði komið inná sem varamaður.

Í uppbótartíma skoraði svo Aníta Ingvarsdóttir og voru því lokatölur 4-0 fyrir Dalvík/Reyni.

Dalvík/Reynir er nú í 5. sæti deildarinnar eftir þennan sigur.