Dalvík/Reynir og Vestri mættust á Dalvíkurvelli
Dalvík/Reynir og Vestri mættust í 2. deild kvenna í gær á Dalvíkurvelli. Eftir ósigur gegn Augnablik í umferðinni á undan þá ætluðu stelpurnar í Dalvík/Reyni að gefa allt í leikinn gegn Vestra. Liðin mættust þrisvar á síðasta tímabili og einnig á tímabilinu áður og voru flestir leikirnir jafnir.
Gestirnir komust yfir með tveimur mörkum seint í fyrri hálfleik og leiddu 0-2 í hálfleik. Það var því á brattan að sækja fyrir D/R stelpurnar í síðari hálfleik.
Þjálfari liðsins gerði eina skiptingu í hálfleik. María Sól Helgadóttir hjá D/R fékk svo beint rautt spjald á 67. mínútu. Töluvert mótlæti í gangi en stelpurnar gáfust ekki upp. Þjálfari liðsins gerði tvöfalda skiptingu á 87. mínútu til að hleypa meira lífi í leikinn.
Arna Elva Valgeirsdóttir skoraði á 88. mínútu og minnkaði muninn í 1-2 og gaf smá vonarglætu.
Dómarinn dæmdi víti á Vestra á 90. mínútu. Iðunn Rán Gunnarsdóttir tók spyrnuna og skoraði. Staðan orðin 2-2 og mikil dramatík í lok leiksins.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og voru lokatölur 2-2. D/R er því komið með 5 stig eftir 5 leiki.
Frábær endurkoma hjá D/R og gott stig í hús.
