dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir semur við ungan leikmann

Dalvíkingurinn Elías Franklin Róbertsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Knattspyrnudeild Dalvíkur og nær samningurinn til næstu tveggja ára.
Elías er fæddur árið 2003, er uppalinn Dalvíkingur en hefur leikið fyrir 2.- 3. flokki KA undanfarin ár.
Í fyrra kom hann inn í æfingahóp meistaraflokks Dalvíkur/Reynis og tók hann þátt í 4 leikjum í 2. deildinni síðasta sumar. Hann á einnig 10 leiki i Lengjubikar og Kjarnafæðismótinu í meistaraflokki.

Elías er örfættur sóknarmaður og einn af þeim ungu og efnilegu Dalvíkingum sem munu eflaust láta til sín taka á næstu árum og verður gaman að fylgjast með.

Dalvíksport.is greindi fyrst frá þessu.

Mynd: Dalviksport.is