Dalvík/Reynir tapaði stórt á Akranesi gegn Kára
Dalvík/Reynir og Kári mættust í Akraneshöllinni í 5. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla í dag. Liðin mættust í deildinni í fyrra og vann D/R báða leikina. D/R var aðeins með einn sigur og eitt jafntefli eftir fyrstu fjóra leiki mótsins en Kári var við efri hlutann í deildinni með 7 stig eftir ágætist byrjun á mótinu.
Kári gerði tvö mörk í fyrri hálfleik og leiddi 2-0 þegar dómarinn flautaði til hálfleiks.
Eftir rúmar 10 mínútur í seinni hálfleik gerðu heimamenn tvö mörk með skömmu millibili og var staðan skyndilega orðin 4-0.
Þjálfari D/R brást við þessu með þremur skiptingum í einu og annarri nokkrum mínútum síðar.
Á 69. mínútu og 73. mínútu komu tvö mörk til viðbótar sem eru skráð sem sjálfsmörk D/R. Staðan orðin 6-0 fyrir heimamenn og enn nægur tími fyrir fleiri mörk.
Lokatölur voru 6-0 fyrir Kára í þessum mikla markaleik.
