Dalvík/Reynir vann KFA í 2. deild karla
Dalvík/Reynir mætti Knattspyrnufélagi Austfjarða á SÚN-vellinum á Neskaupsstað í 21. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla. KFA hafði unnið fjóra síðustu deildarleiki og voru í 4. sæti deildarinnar. Dalvík/Reynir vann fyrri leik liðanna á Íslandsmótinu í sumar og einnig í Lengjubikarnum í vor.
Heimamenn byrjuðu betur í fyrri hálfleik og skoruðu á 10. mínútu og aftur á 23. mínútu, staðan 2-0.
D/R náði að svara með marki rétt fyrir hálfleik, þegar Gabriel Lukas Freitas Meira skoraði á 43. mínútu og var staðan 2-1 í hálfleik.
Engar breytingar voru gerðar í hálfleik en bæði lið gerðu þrefalda skiptingu á 63. mínútu leiksins. Heimamenn léku fast og fengu fjögur gul spjöld á 10 mínútna kafla um miðjan síðari hálfleik.
D/R börðust áfram og komust aftur inn í leikinn þegar Atli Þór Sindrason skoraði á 73. mínútu og jafnaði 2-2.
Á 79. mínútu komst D/R yfir í leiknum þegar Áki Sölvason skoraði og var staðan orðin 2-3 og voru lokamínúturnar spennandi. Tíunda markið hjá Áka í deildinni í sumar.
D/R hélt út og unnu góðan sigur á útivelli, lokatölur 2-3 og er liðið nú í 5. sæti deildarinnar þegar einni umferð er eftir ólokið, en pakkinn um miðja deild er mjög þéttur.
