dalvíkurbyggð

Dalvík/Reynir vann Sindra í 2. deild kvenna

Kvennalið Dalvíkur/Reynis mætti Sindra í lokaleik í B-úrslitum 2. deildar kvenna. Leikurinn fór fram á föstudagskvöld á Dalvíkurvelli. Sindri vann fyrri leik liðanna í úrslitakeppninni 4-0 og vildu D/R stelpurnar svara fyrir það á heimavelli. Sindraliðið var ósigrað í úrslitakeppninni fyrir þennan leik.

D/R komst yfir á 14. mínútu með marki frá Anítu Ingvarsdóttur.

Arna Kristinsdóttir skoraði fyrir D/R á 30. mínútu og var staðan orðin 2-0. Arna skoraði aftur á 42. mínútu og var staðan orðin 3-0. Gestirnir minnkuðu muninn á 44. mínútu og var staðan 3-1 í hálfleik.

Rakel Stefánsdóttir skoraði á 52. mínútu og kom D/R í 4-1.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og vann D/R frábæran sigur á Sindra.

Lokatölur 4-1.