Dalvík snocross 2026 haldið um helgina
Vélsleðakeppni verður haldin á Dalvík um helgina. Keppnin hefst kl. 11 á laugardag og lýkur um kl. 16.
Undirbúningur hefur staðið yfir frá 20. febrúar og hafa um 700 vörubílar flutt snjó í brautina eða samtals um 10.000 rúmmetrar af snjó.
Alls koma um 15 manns að uppbyggingu brautarinnar sem inniheldur tvo stóra palla og tvo svokallaða „úpsa“-kafla sem reyna á bæði tækni og úthald keppenda.
Mótið er haldið af Miðgarði Akstursíþróttafélagi í umboði Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands (MSÍ) með stuðningi frá Steypustöðinni Dalvík, GS Frakt, Skíðafélagi Dalvíkur, Sæplast, Arctic Sea Tours, Dalvíkurbyggð, Slippnum, Brandi verktaka og Hrappi.
Frítt á viðburðinn er á viðburðinn þeir sem vilja styðja við uppbyggingu svæðinsins er bent á að kaupa dagpassa eða árskort hjá Skíðafélagi Dalvíkur.
Barnabraut, skautasvæði, gönguskíðabraut og skíðasvæðið á Dalvík er staðsett í næsta nágrenni við keppnissvæðið. Þannig gefst fjölskyldum og gestum tækifæri til að sameina heimsókn á snocrossmótið og aðra útivist.
Dagskrá helgarinnar:
Föstudagur• Lokafrágangur brautar
Laugardagur• Keppni hefst kl. 11:00• Lokaumferð kl. 15:00• Keppni lýkur um kl. 16:00
Sunnudagur• Hópferð á vélsleðum inná Böggvisstaðadal kl. 10:00






