dalvíkurbyggð

Dalvík vann stórsigur á Magna í Lengjubikarnum

Dalvík/Reynir og Magni mættust í Lengjubikarnum í dag á Dalvíkurvelli.  Bæði lið voru með þrjú stig eftir 1. umferðina. D/R stillt upp sterku liði í þessum leik og voru 80 áhorfendur að hvetja liðið áfram.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur og gerðu tvö mörk í fyrri hálfleik. Borja Laguna opnaði leikinn á 29. mínútu Remi Marie kom D/R í 2-0 á 41. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Fimm gul spjöld litu líka dagsins ljós í fyrri hálfleik.

Þjálfari D/R gerði eina skiptingu í hálfleik og kom Alex Máni Garðarsson inná en hann er nýkominn til liðsins frá KF. Útaf fór Aron Máni Sverrisson.

Áki Sölvason skoraði þriðja mark D/R á 57. mínútu, og var liðið komið í góða stöðu. Þjálfari Magna gerði þá þrefalda skiptingu til að reyna koma liðinu inn í leikinn.

Áki Sölvaon skoraði svo sitt annað mark á 72. mínútu og kom D/R í 4-0.  D/R fékk svo víti á 86. mínútu og tók Tómas Þórðarsson vítið og skoraði. Lokatölur í leiknum urðu 5-0.

Númi Káraon fyrrum leikmaður D/R lék í 86. mínútur fyrir Magna í þessum leik.