Dalvíkurbyggð í samstarf með sundkort við Fjallabyggð
Í gær var undirritaður samningur milli Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um gagnkvæma viðurkenningu á kortum íþróttamiðstöðva sveitarfélaganna. Samningurinn felur í sér að korthafar í einu sveitarfélagi geta framvegis nýtt kortin sín í sundlaugum hins sveitarfélagsins án aukakostnaðar. Þetta eykur aðgengi íbúa að sundlaugum sveitarfélaganna og stuðlar að auknu samstarfi og samvinnu.
Samkomulagið nær eingöngu til sundlauga, ekki til heilsuræktar í sveitarfélögunum.
Með þessari samvinnu er stigið jákvætt skref í þá átt að efla þjónustu við íbúa beggja sveitarfélaga og stuðla að meiri hreyfingu og vellíðan.
