Dramatískur sigur á Dalvíkurvelli
Dalvík/Reynir mætti KFA á Dalvíkurvelli í 10. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla. KFA var í þriðja neðsta sæti deildarinnar fyrir þennan leik en D/R voru í toppbaráttunni. Þrátt fyrir að KFA sé neðarlega í deildinni þá hefur liðinu gengið vel að skora mörk, en liðið hafði skoraði 24 mörk í fyrstu 9 leikjum deildarinnar á meðan D/R hafði aðeins skorað 17. Liðin mættust í Lengjubikarnum í vor og vann D/R þar 2-3 útisigur.
Ekki var mikið um færi í þessum leik og gekk liðunum erfiðlega að fá opin færi. Staðan var 0-0 í hálfleik. Dómarinn hafði í nægu að snúast og gaf 9 gul spjöld, þar af 5 á D/R.
Í uppbótartíma þá tók Áki Sölvason hornspyrnu fyrir D/R, og smellti honum beint í markið og var staðan skyndilega 1-0 þegar lítið var eftir.
Lokatölur 1-0 fyrir Dalvík/Reyni og var þetta fimmti sigurleikurinn í röð í deildinni og hefur liðið einnig haldið hreinu, og fengið ekkert mark á sig.
