Dreifilínur komnar í jörð í Dalvíkurbyggð árið 2024
Fjölmennur íbúafundur var haldinn í Rimum í Dalvíkurbyggð í vikunni þar sem farið var yfir mál vegna óveðursins í desember.
Viðbragðsaðilar héldu tölu um það hvað fór vel, hvað hefði mátt betur fara og hvaða lærdóm þeir hafi dregið af þessum aðstæðum. Einstaklingar komu frá Veitum, Landsneti, Rarik, Björgunarsveitinni, Lögreglunni, Slökkviliðinu, Rauða Krossinum, Búnaðarsambandinu og Jónína prestur, sem fulltrúi kirkjunnar.
Farið var yfir breytta áætlun um endurnýjun dreifikerfis á Norðurlandi. Ákveðið hefur verið að setja aukafjármagn í endurnýjun kerfisins og er þar áætlun um að leggja jarðstreng þar sem eftir er í Svarfaðardal. Þá er áætlun um að allar dreifilínur í Dalvíkurbyggð verði komnar í jörð árið 2024.
Viðbragðsaðilar töluðu um hvað samstarfið milli aðila hafi gengið vel, allir hafi unnið sem einn maður til að ná sem bestum árangri í afar erfiðum aðstæðum. Þá var sérstaklega talað um hvað móttökur í Dalvíkurbyggð hefðu verið góðar. Margir hefðu verið tilbúnir til að aðstoða þar sem hægt var að aðstoða og góður mannskapur hefði fengist í erfið verk.
Frá þessu var greint á vef Dalvíkurbyggðar.