dalvíkurbyggð

Ellefu ferðir skipulagðar í sumar hjá Ferðafélaginu Trölla

Ferðafélagið Trölli í Fjallabyggð heldur úti þéttri gönguáætlun í sumar. Fyrsta skipulagða gangan verður farin 18. júní á Garðshyrnu. Í framhaldinu verður Sólstöðuganga upp á Múlaplan þann 20. júní.  Þá eru fjórar göngu skipulagðar í júlí og aðrar fjórar í ágúst. Margar skemmtilegar leiðir eins og Hvanndalir, Póstleiðin um Siglufjarðarskarð, Rauðuskörð og Hestskarð. Láttu þig ekki vanta og skráðu þig í göngu í sumar með hressu fólki.

Hægt er að fylgjast með skipulaginu í sumar hjá Ferðafélaginu Trölla á fésbókinni.