Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir áfram sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt að ráða Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur áfram í starf sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar. Ráðningarsamningur við hana hefur einnig verið samþykktur. Var þetta samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 5. júní síðastliðinn.
