Fjallabyggð

Fimm handteknir á Siglufirði í aðgerð lögreglu og sérsveitar

Í kvöld kl. 18:40 barst tilkynning til Lögreglunnar á Norðurlandi eystra um slasaðan mann innanbæjar á Siglufirði. Virtist um áverka að ræða sem gætu stafað af líkamsárás eða átökum milli manna.
Til að tryggja almennt öryggi var farið í sameiginlega aðgerð Lögreglunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Í framhaldinu voru fimm aðilar handteknir í íbúðahúsnæði á Siglufirði og færðir í varðhald lögreglu, grunaðir um aðild.
Hinn slasaði var fluttur til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Siglufirði og þaðan á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Málið er á frumstigi og unnið er að rannsókn þess.
Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.
Þetta kom fram í tilkynningu frá Lögreglunni í kvöld.