Fjarðarhlaupið í Fjallabyggð á laugardaginn
Fjarðarhlaupið í Fjallabyggð fer fram laugardaginn 16. ágúst næstkomandi á vegum Skíðafélags Ólafsfjarðar. Þetta er í fimmta skiptið sem hlaupið er haldið. Ýmsar leiðir og útfærslur eru í boði og ættu allir að finna sér hlaup eða göngu við hæfi. Skráning á Netskraning.is
Lengsta hlaupið er 32 km fjallahlaup frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Ræst verður frá Sigló Hótel og hlaupið sem leið liggur inn Hólsdal í Siglufirði og upp í Hólsskarð. Þar er stefnan tekin niður Ámárdal, niður í Héðinsfjörð að Héðinsfjarðargöngum. Þá er stefnan sett á Víkurdal yfir Rauðskörð og niður Ytri-Árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar. Hlaupið er fyrir 17 ára og eldri.
Næst er 18 km fjallahlaup fyrir 12 ára og eldri, en mælt með að börn séu í fylgd með fullorðnum. Ræst er frá Héðinsfjarðargöngum og hlaupið sem leið liggur að Víkurdal, hlaupið inn dalinn og yfir Rauðskörð (600m) og niður Ytri-Árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar.
Nýtt hlaup í boði sem er 12 km utanvegarhlaup. Ræst er frá Kleifum í Ólafsfirði og hlaupið sem leið liggur inn Syðri Árdal. Hlaupið er inn fyirr “hóla” í Syðri Árdal, þar farið yfir ánna og hlaupið niður aftur að Kleifum. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar.
Skemmtiskokk er í boði 5 km og 10 km. Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupinn 5 eða 10 km hringur á götum og stígum. Hlaup sem hentar öllum.
Gönguferð er nýr viðburður einnig. Gönguferð Héðinsfjörður – Rauðskörð – Kleifar Ólafsfirði
Gönguferð undir leiðsögn Maríu Bjarney Leifsdóttur, tilvalin valkostur fyrir göngufólk eða þá sem treysta sér ekki til að hlaupa meiri hluta leiðarinnar.
5/10 km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 4.000 kr.
Gönguferð með leiðsögn 5.000 kr.
18 km, fjallahlaup 12 ára og eldri, 8.000 kr.
32 km, fjallahlaup 17 ára og eldri, 12.000 kr.
kl: 10:00 Ræst út frá Sigló Hótel
Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!
kl: 11:00 Ræst út í Héðinsfirði.
Skráning og ræsing við Kaffi Klöru
kl 12:20 Ræst út frá Kaffi Klöru
