Fjallabyggð

Fjarnám í MTR í næstu viku

Vegna samkomutakmarkana verður fjarnám í Menntaskólanum á Tröllaskaga vikuna 5.-9. október, nemendur mæta samkvæmt stundaskrá í fjarkennslustofur sínar sem finna má í kennslukerfinu Moodle. Vikuna 12.-16. október er miðannarvika og full mæting í staðnámi frá 08:10 – 15:15 mánudag til föstudags. Skólinn er ekki lokaður og geta nemendur því komið og unnið í skólanum ef þeir svo kjósa.

Þetta kemur fram í tilkynningu á mtr.is.