Fjörukaffi opnað á Hauganesi
Fjörukaffi við Fjöruböðin á Hauganesi hefur opnað. Staðurinn er nýr og notalegur, þar sem hægt er að njóta sjávarútsýnis, fá kaffi og annað bakkelsi. Hauganes er hluti af Árskógsströnd og syðsti þéttbýliskjarni Dalvíkurbyggðar.
Opið er alla daga frá 12:00–20:00.
