Fór holu í höggi á Dalvík
Kylfingurinn Arna Stefánsdóttir fór holu í höggi á Arnarholtsvelli í Dalvík í dag. Höggið kom á þriðju holu sem er 137 metrar. Hún notaði hybrid kylfu við höggið.
Golfklúbburinn Hamar Dalvík greindi frá þessu á samfélagsmiðlum ásamt ljósmynd sem fylgir fréttinni.
