dalvíkurbyggð

Frábær fyrri hálfleikur hjá Dalvík/Reyni gegn KFG

Dalvík/Reynir heimsótti KFG í 9. umferð Íslandsmótsins í 2. deild karla,leikurinn fór fram á Samsungvellinum í Garðabæ.Dalvík/Reynir voru ósigraðir í síðustu þremur deildarleikjum og höfðu ekki fengið á sig mark. Leikir liðanna hafa verið jafnir síðustu ár en jafnt var á heimavelli KFG í fyrra í deildinni en D/R vann sinn heimaleik.

D/R byrjaði frábærlega og skoraði liðið strax á 1. mínútu og aftur á 6. mínútu. D/R fékk dæma vítaspyrnu á 34.mínútu og skoraði Áki Sölvason úr henni.

Sævar Þór Fylkisson kom liðinu í 0-4 á 39. mínútu. Atli Þór Sindrason skoraði  fimmta mark D/R á 42. mínútu og var staðan 0-5 í hálfleik. Frábær fyrri hálfleikur.

Heimamenn gerðu eina skiptingu í hálfleik.

Þjálfari D/R gerði þrefalda skiptingu á 67.mínútu, og 10 mínútum síðar skoraði Hektor Bergmann Garðarsson úr vítaspyrnu. Staðan orðin 0-6.

Fleiri mörk voru ekki skoruð en D/R hefur núna unnið 4 leiki í röð og skorað 12 mörk og haldið markinu hreinu.

Frábær leikur hjá D/R.