Freyr Jónsson gerir tveggja ára samning við Dalvík/Reyni
Dalvík/Reynir hefur samið við miðjumanninn Frey Jónsson til tveggja ára. Hann er fæddur árið 2001 og lék upp yngri flokkana með KA. Hann lék með Grindavík frá 2021-2023 og með Dalvík/Reyni sumarið 2024, þar af 14 deildarleiki, 2 bikarleiki og 5 í Lengjubikar. Meiðsli og nám héldu honum frá knattspyrnu síðasta sumar.
Freyr hefur alls spilað 79 leiki í meistaraflokki og gert tvö mörk.
