dalvíkurbyggð

Frítt í badminton á sunnudögum

Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar hefur ákveðið að bjóða áfram upp á badmintontíma á milli kl.12:00-13:00 á sunnudögum í vetur líkt og í fyrra. Þessir tímar eru hugsaðir fyrir sama aldur og stunda líkamsrækt, og gilda sömu reglur, 12-14 ára mega koma með foreldrum. Fyrsti tími verður sunnudaginn 8. september næstkomandi.

Engin skráning er í tímana, bara að mæta. Frítt verður í tímana og allur búnaður til á staðnum.

Íþróttamiðstöð Dalvíkur
Mynd: dal.is/ Magnús Rúnar Magnússon