Frítt í Strætó og landsbyggðarstrætó 22. september
Á bíllausa daginn, föstudaginn 22. september, verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó. Bíllausi dagurinn er haldinn í tilefni af evrópsku samgönguvikunni sem er frá 16. – 22. september.
Strætó hefur tekið þátt í samgönguvikunni með viðburðinum Bíllausi dagurinn undanfarin ár. Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó. Með því verður frítt í Strætó á milli byggðarlaga fyrsta sinn.
Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir fólk til að breyta út af vananum, hvíla bílinn og velja fjölbreyttari og vistvænni ferðamáta.
