Góð kjörsókn í Dalvíkurbyggð
Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð liggja nú fyrir og var þátttaka íbúa góð.
Á kjörskrá voru alls 1.475 kjósendur og greiddu 1.103 atkvæði, og var 74,8% kjörsókn.
Af greiddum atkvæðum voru 1.068 gild, eða 96,8%, en 35 seðlar voru auðir eða ógildir. Þar af voru 8 seðlar ógildir og 27 auðir.
Atkvæðahlutfall og kjörnir fulltrúar:
Atkvæði skiptust þannig milli framboðslista:
- A-listi Byggðalistans hlaut 134 atkvæði (12,5%) og fékk 1 fulltrúa kjörinn
- B-listi Framsóknarflokksins hlaut 165 atkvæði (15,4%) og fékk 1 fulltrúa kjörinn
- D-listi Sjálfstæðisflokksins hlaut 257 atkvæði (24,1%) og fékk 2 fulltrúa kjörna
- K-listi Dalvíkurbyggðar hlaut 512 atkvæði (47,9%) og fékk 3 fulltrúa kjörna
