dalvíkurbyggðFjallabyggð

Golfklúbburinn Hamar Dalvík og Golfklúbbur Fjallabyggðar mættust í bæjarkeppni

Hin árlega bæjarkeppni Golfklúbbs Fjallabyggðar (GFB) og Golfklúbbsins Hamars Dalvík (GHD) fór fram á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði 27. ágúst síðastliðinn. Fjörtíu kylfingar mættu til leiks. Átta bestu skorin töldu til sigurs hjá hverju liði. 18 kylfingar voru frá GHD og 22 frá GFB.
Golfklúbbur Fjallabyggðar sigraði keppnina með 144 punktum gegn 132 punktum GHD. Vöfflukaffi var í golfskálanum að móti loknu.
GFB:
Unnsteinn Sturluson 19 punktar
Dagný Finnsdóttir 19 punktar
Bergur Rúnar Björnsson 18 punktar
Sigurbjörn Þorgeirsson 18 punktar
Geir Hörður Ágústsson 18 punktar
Guðrún Unnsteinsdóttir 18 punktar
Björn Kjartansson 17 punktar
Björg Traustadóttir 17 punktar
Samtals = 144 punktar
GHD:
Gígja Kristín Kristbjörnsdóttir 19 punktar
Valur Júlíusson 18 punktar
Guðmundur St. Jónsson 18 punktar
Sigurður Ásgeirsson 16 punktar
Indíana Auður Ólafsdóttir 16 punktar
Barri Björgvinsson 15 punktar
Maron Björgvinsson 15 punktar
Gústaf Adolf Þórarinsson 15 punktar
Samtals = 132 punktar