Helgihald í Dalvíkurprestakalli
Dagskrá Dalvíkurprestakalls yfir jólahátíðina. Aftansöngur í Dalvíkurkirkju kl. 17:00.
Aðfangadagur :
- Möðruvallakirkja er opin milli 12-14. Tónlist ómar og hægt að kveikja á bænakertum og tylla sér, þegar rennt er í garðinn að vitja ástvina.
- Dalvíkurkirkja – Aftansöngur kl. 17.00 – Jólin sungin inn á hátíðlegri stundu. Þórður Sigurðarson stjórnar kór og sr. Erla Björk þjónar.
Jóladagur :
- Stærri-Árskógskirkja – Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Erla Björk þjónar og Þórður Sigurðarson stjórnar kór.
- Möðruvallakirkja – Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Oddur Bjarni þjónar og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir stjórnar kór.
- Vallakirkja – Hátíðarguðsþjónusta kl. 13.00. Sr. Erla Björk þjónar og Páll Barna Zsabo stjórnar kór.
- Hríseyjarkirkja – Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Oddur Bjarni þjónar og Þórður Sigurðarson stjórnar söng og annast hljóðfæraleik.
Annar dagur jóla :
- Dalbær – Hátíðarmessa kl. 11.00. Sr. Erla Björk þjónar og Þórður Sigurðarson stjórnar kór.
27. desember:
- Hátíðarmessa í Grímsey (ef veður lofar) Sr. Oddur Bjarni og Þórður annast hana.
31. desember:
- Gamlársdagur : Dalvíkurkirkja : Áramótastemning kl. 16.00.
5. janúar 2025:
- Urðakirkja : Nýársmessa kl. 13.00. Sr. Oddur Bjarni þjónar og Þórður Sigurðarson stjórnar kór.
