Hrísey

Hríseyjarhátíð um helgina

Hríseyjarhátíðin hófst í gær en þá var garðakaffi í gangi í nokkrum görðum hjá íbúum eyjunnar. Þá voru farnar óvissuferðir barna og unglinga um eyjuna. Í dag er Hríseyjarhlaupið haldið og mikið fjör á hátíðarsvæðinu sjálfu. Þar verða leiktæki, andlitsmálning, kaffisala, Leikhópurinn Lotta, litla kirkjuhlaupið, ratleikur og hópakstur dráttarvéla. Í kvöld verður svo kvöldvaka, varðeldur, brekkusöngur og fjölskyldudiskó. Nánari dagskrá má finna á vef hátíðarinnar.

Hríseyjarferjan Sævar gengur á eyjunnar og lands á tveggja tíma fresti.