Akureyri

Húsleitir og handtökur á Akureyri vegna skotvopns og fíkniefna

Á laugardagskvöld þann 17. janúar fór lögregla í aðgerðir á Akureyri í þeim tilgangi að hafa uppi á skotvopni sem grunur er um að notað hafi verið við hótanir.

Húsleitir og handtökur fóru fram á fjórum stöðum á Akureyri. Sex einstaklingar voru handteknir og hald lagt á talsvert magn fíkniefna, fjármuni, eggvopn, skotvopn, skotfæri og meintan ávinning af brotastarfsemi.

Rannsókn lögreglu beinist að fjórum sakborningum en þar af eru tveir undir 18 ára aldri.

Allir aðilar hafa verið látnir lausir og málið er í rannsókn.

Í tengslum við rannsókn málsins óskar lögregla eftir upplýsingum sem fólk kann að hafa um nýlegar hótanir með skotvopni.