Innbrot í byggingafyrirtæki á Akureyri og tölvubúnaði stolið
Fimmtudaginn 15. janúar síðastliðinn var tilkynnt um innbrot í byggingafyrirtæki á Akureyri. Þaðan var stolið sérhæfðum tölvubúnaði, lyklum af fjölda ökutækja, vinnutækja og ýmsum verðmætum og hófst rannsókn þá þegar á málinu.
Að kvöldi 16. janúar voru fjórir einstaklingar handteknir á Akureyri og einn á Raufarhöfn grunaðir um aðild að innbrotinu. Í framhaldi var farið í húsleitir á Raufarhöfn.
Með aðgerðunum hafði lögregla uppi á þýfinu og er búið að koma því til skila til réttra eigenda. Rannsókn málsins er langt komin.
