Innritun í leikskóla að hefjast
Aðalinnritun í leikskóla í Dalvíkurbyggð fyrir haustið 2025 fer fram í apríl. Þá fá foreldrar nýrra nemenda send innritunarbréf frá leikskólum í tölvupósti. Foreldrar þurfa því að vera búin að sækja um pláss fyrir 31. mars.
Innritað er í hvern skóla eftir kennitölum umsækjenda.
Gera má ráð fyrir að aðlögun geti hafist í september ef búið er að manna leikskólana í Dalvíkurbyggð fyrir haustið. Tímalengd aðlögunartímabilsins fer eftir fjölda nemenda ásamt aldri.
