dalvíkurbyggð

Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum í Svarfaðardal þann 20. júní

Laugardaginn 20. júní fer fram Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum í Svarfaðardal á vegum Hjólreiðafélags Akureyrar. Keppni stendur yfir á milli kl. 10:00 og 14:00 og verður hjólað í 23,6 km keppnishring um dalinn. 42 keppendur eru skráðir.

Búast má við aukinni umferð hjólreiðafólks á svæðinu meðan á keppni stendur. Mikilvægt er að ökumenn og aðrir vegfarendur, fari varlega, sýni keppendum sérstaka aðgát og taki fullt tillit til aðstæðna á leiðinni.

Ræst er við Víkurröst á Dalvík kl. 09:00 A karla fer 140,4 km 6 hringir A kvenna fer 117 km 5 hringir B karla sama B kvenna 93,6 4 hringir Skemmtiflokkur 46 km.

Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum fer fram á Svarfaðardalshringnum. Ræst verður við Víkurröst á Dalvík og fylgt rásbíl inn á hringinn sunnan megin. Þaðan hjóla keppendur réttsælis um hringinn, vegalengd gæti aðeins breyst lítilega.

Keppnishandbók

Flokkur Hringir Vegalengd
Elite karlar  6 140,4 km
Elite konur  4 117 km
Junior Karla  4 93 km
Junior konur  3 70 km
U-17 karlar  3 70 km
U-17 konur  2 46 km