dalvíkurbyggðFjallabyggð

Íslenska sem annað tungumál kennt í MTR

Menntaskólinn á Tröllaskaga mun bjóða upp á tvo áfanga á vorönn 2026 í íslensku sem annað tungumál. Annars vegar áfangann ISAN1AB05 og ÍSAN2GB05. (English below)

Allt nám í MTR er sett upp sem fjarnám en reiknað er með að sem flestir sem búa í Fjallabyggð og ætla að stunda námið hittist í MTR tvisvar í viku.

Innritun hefst 1. nóvember næstkomandi og kostar önnin samtals 19.000 kr. fyrir einn áfanga, 6000 kr. innritunargjald og 13.000 fyrir einn áfanga.

English on this link:

Fjallabyggð hvetur forstöðumenn stofnana sinna að sjá til þess að fólki verði gert kleift að sækja námið t.d. undir lok vinnudags. Boðið er uppá samtal um hentugan tíma og eru áhugasöm hvött til að hafa samband við Idu Semey hjá MTR, ida@mtr.is sem einnig er tilbúin til að koma og hitta fólkið sé áhugi er fyrir því.