Jónsmóti frestað til 21.-23. mars
Jónsmótsnefndin hefur tilkynnt að á Dalvík eru snjóalög þannig að ekki verður hægt að keyra Jónsmót um komandi helgi. Mótinu er því frestað til 21.-23. mars næstkomandi.
Séu einhverjir sem ekki komast þá helgina, þá er fólk vinsamlegast beðið um að afskrá keppanda á jonsmot@jonsmot.com.
Hægt verður að afskrá til sunnudags 16.mars kl 20:00.
Keppt verður í sundi, svigi og stórsvigi.
