K-listinn slítur meirihlutanum í Dalvíkurbyggð
K-listinn hefur slitið meirihluta samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í Dalvíkurbyggð.
Þau ákváðu að slíta sterkum meirihluta og hefja viðræður við annan flokk án viðræðna við samstarfsflokk sinn til fjögurra ára.
K-listinn hefur ákveðið að fara í meirihlutaviðræður við Framsóknarflokkinn í Dalvíkurbyggð, sem fékk 15,4% í kosningunni, en Sjálfstæðisflokkurinn fékk 24,1%. Samkvæmt tilkynningu frá oddvita Sjálfstæðisflokksins þá var ekki málefnaágreiningur á milli flokkanna.
