dalvíkurbyggðFjallabyggð

KF-Dalvík 4. flokkur kvenna á Reycup

Kvennalið KF/Dalvík í 4. flokki hóf leik á Reycup knattspyrnumótinu í dag og áttu þær tvo leiki. Fyrri leikurinn var í morgun í Safamýrinni gegn HK-2.

KF/Dalvík hafði mikla yfirburði í leiknum og fengu ótal færi til að skora en margir boltar fóru yfir eða framhjá. 0-0 var í hálfleik. HK liðið fékk mjög fáar sóknir en ein slík skilaði óvæntu marki í síðari hálfleik. Allt leit út fyrir að HK myndi fara með öll 3 stigin en þegar komið var fram á síðustu mínútu leiksins og skoraði loksins KF/Dalvík og jafnaði leikinn í 1-1. Ekki var tími fyrir fleiri mörk og voru KF/Dalvík stelpurnar afar óheppnar að vinna ekki stórsigur í þessum leik.

Þær áttu næst leik við Gróttu/Selfoss 2 í Laugardalnum kl. 13:00, svo það var ekki mikil hvíld á milli leikja hjá þeim. KF/Dalvík byrjaði leikinn af krafti og voru komnar í 2-0 eftir um 10 mínútur. Liðið spilaði vel í fyrri hálfleik, boltinn gekk vel á milli og fengu þær nokkur ágæt marktækifæri. Grótta/Selfoss minnkaði muninn í 2-1 og þannig var staðan í hálfleik.

KF/Dalvík skoraði annað gott mark í síðari hálfleik og komst í 3-1. Seinni hálfleikur var rólegri en sá fyrri og færri marktækifæri. Dómarar voru að fylgja nýjum reglum og var nokkuð mikið dæmt á ólögleg innköst hjá báðum liðum, en ekki má lyfta öðrum fæti upp eða stíga inn á völlinn við innkast. Einnig má markmaður ekki hafa boltann nema í 8 sekondur inn í teig og var einu sinni dæmt á það.

Lokatölur leiksins 3-1 og góður sigur KF/Dalvíkur.