KF-Dalvík á Reycup í 4. flokki drengja
Sameiginlegt lið KF og Dalvíkur hóf leik gegn Val 3 í hádeginu í dag. Leikurinn fór fram rétt við TBR húsið í Laugardalnum og var skýjað og hvasst mest allan leikinn en alveg laust við rigningu.
Valur byrjaði fyrri hálfleikinn vel og leiddu 1-0 í hálfleik. KF/Dalvík komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og áttu góðar sóknir, spilið gekk vel hjá báðum liðum og fékk KF/Dalvík um 3-4 færi sem nýttust ekki. Tvö færi hjá KF/Dalvík komu á fyrstu mínútum síðari hálfleiks og voru þeir óheppnir að ná ekki að jafna leikinn. Valur átti einnig sín færi og fengu þeir 4-5 færi sem nýttust ekki í síðari hálfleik.
Þegar skammt var eftir af leiknum komst KF/Dalvík í góða sókn og endaði boltinn loksins í netinu, staðan 1-1 og mjög stutt eftir af leiknum.
Valur komst í góða sókn og vildu fá vítaspyrnu, en dómarinn dæmdi aukaspyrnu á vítateigslínunni. Boltinn fór yfir og dómarinn flautaði leikinn af. Lokatölur 1-1.

